Konungshjónin vitja slasaðra á sjúkrahúsum
What the source reports
Spænsku konungshjónin, Filippus og Letizia, heimsækja í allan dag fólk sem liggur á háskólasjúkrahúsinu í borginni Toledo eftir að hraðlest var ekið á aðra kyrrstæða í héraðinu Castilla-La Mancha í gær. Minnst 69 fórust í slysinu samkvæmt frétt El País í morgun, um 200 slösuðust og rúmlega 50 liggja enn á sjúkrahúsi.
Forsætisráðherrann Pedro Sánchez er þegar kominn til héraðsins til að taka þátt í fundi miðlægrar stjórnstöðvar aðgerða – CECOPI. Ítarleg rannsókn er hafin á tildrögum slyssins og þriggja daga þjóðarsorg hófst í morgun. Vinstrisinnaða kosningabandalagið Frente Amplio hefur krafist þess að samgönguráðherrann Oscar Puente flytji þinginu skýrslu um mögulegar ástæður slyssins. Stéttarfélag lestarstjóra heldur til streitu verkfalli hjá lestarfélaginu Renfe sem boðað var fyrir slysið og krefst aukins öryggis í járnbrautarsamgöngum. Almenningur er hvattur…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗