One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandKoma mörg hundruð köttum til bjargar árlega

Koma mörg hundruð köttum til bjargar árlega

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 8:10 PM
Koma mörg hundruð köttum til bjargar árlega
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 8:10 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Kattholt og Kattavinafélag Íslands fögnuðu samtals 85 ára afmæli í dag, en Kattholt hefur verið starfrækt í 35 ár og Kattavinafélag Íslands í 50 ár. Það var margt um manninn – og köttinn – í afmælisveislunni sem haldin var í húsnæði Kattholts í Stangarhyl í Reykjavík. Boðið var upp á vöfflur og afmælisköku, og andlitsmálningu fyrir börn sem fullorðna.

Kristbjörg Lúðvíksdóttir, aðstoðarrekstrarstjóri Kattholts, segir að árlega komi Kattholt 200 til 300 köttum til bjargar. Þá rekur Kattholt einnig kattahótel fyrir ketti sem þurfa pössun þegar eigendur eru fjarverandi. En hvað er mikilvægast að hafa í huga þegar maður tekur að sér kött? „Það er mikilvægast að hafa gott fóður, góða vatnsskál, góðan kattasand og allt tilbúið, hafa rólegar aðstæður, hafa smá næði,“ segir Andrea Björk Hannesdóttir, dýralæknir hjá Dýrheimum, sem veitti gestum og gangandi ráð varðandi gæludýrin sín.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS