Katla Björk svekkt eftir HM en dregur lærdóm úr keppninni
What the source reports
Katla Björk Ketilsdóttir reið á vaðið fyrir hönd Íslendinganna á HM í ólympískum lyftingum sem fram fer í Ningbo í Kína um þessar mundir. Katla Björk keppti í 61 kílóa flokki í D-hópi. Opnunarlyfta Kötlu Bjarkar var 86 kíló í snörun og gekk að óskum. Í þeirri næstu gerði hún atlögu að Íslandsmeti þegar 90 kíló voru á stönginni.
Það gekk hins vegar ekki og hún reyndi við sömu þyngd í þriðju lyftu en sömu sögu var að segja þar. Í jafnhendingu lyfti hún mest 103 kílóum í annarri lyftu en sú þriðja fór ekki upp. Samanlagður árangur Kötlu Bjarkar var því 189 kíló sem skilaði henni fimmta sætinu af tíu keppendum. Í heildina endaði Katla Björk í 31. sæti í sínum þyngdarflokki. Dregur mikilvægan lærdóm úr keppninni „Ég er smá svekkt,…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗