One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Kári um Úkraínuleikinn: „Gamli góði skyldusigurinn“

Kári um Úkraínuleikinn: „Gamli góði skyldusigurinn“

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 4, 2026, 3:52 PM
Kári um Úkraínuleikinn: „Gamli góði skyldusigurinn“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 4, 2026, 3:52 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Fyrir það fyrsta verð ég að segja hvað ég er drulluspenntur að fá fulla Laugardalshöll og ég verð að segja að það er algjört lykilatriði til að pumpa svolitlu lífi í þetta allt saman,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson, handboltasérfræðingur, í samtali við RÚV í dag um leik Íslands gegn Úkraínu í Laugardalshöll í kvöld. Þetta er fyrsti leikur liðsins í undankeppni fyrir EM 2028 og er eins og fram hefur komið uppselt á leikinn og búist við mikilli stemmingu í Laugardalshöllinni. Úkraína hefur ekki átt góðu gengi að fagna á þessu ári en liðið hefur tapað 4 af 5 leikjum ársins.

„Andstæðingur dagsins er svolítið óskrifað blað, margir nýjir leikmenn að koma inn og þeir eru með nokkrar þekktar stærðir í Frakklandi annars rennum við frekar blint í sjóinn. “ Á Kári þar einna helst við vinstri skyttuna Ihor Turchenko, leikmann Nantes í Frakklandi. Vadym Brazhnyk þjálfari Úkraínumanna sparaði ekki hrósið til íslenska liðsins fyrir leikinn en hann segir liðið vera eitt af sjö bestu landsliðum í heiminum í dag. Aðspurður hvernig Kári sæi fyrir sér að Snorri myndi stilla upp þessu verkefni þegar nokkra mikilvæga leikmann vantar á borð við Ými Örn Gíslason, Einar Þorstein Ólafsson og Viggó Kristjánsson sagði hann fjarveru þeirra ekki hafa mikil áhrif í ljósi gæðanna í hópnum. „Í þessu verkefni myndi ég segja að þetta hafi ekki áhrif, við erum með feykilega góðan og breiðan hóp og verður áhugavert að sjá hvort hann nái í þessum leikjum…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS