Jökull sökk í þriðja sinn í Hafnarfjarðarhöfn
What the source reports
Jökull SK-16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Þetta er í þriðja sinn sem báturinn sekkur í höfninni á sex árum. Fyrst sökk hann árið 2020 og síðast sökk hann í september fyrir ári síðan og var þá lyft og dælt úr honum. Jökull er 80 tonna trébátur, smíðaður í Þýskalandi árið 1959. Hann var gerður út frá Sauðárkróki af útgerðinni Gamli og synir ehf. Hann hefur verið bundinn óhreyfður við bryggju árum saman. Jökull-SK-16, 80 tonna trébátur, sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Báturinn hefur sokkið þrisvar sinnum á sex árum og hefur verið bundinn við bryggju óhreyfður.
Guðmundur Fylkisson, sem er í hafnarstjórn, segir að báturinn hafi verið farinn að síga í gær og því voru settar upp dælur. „Ég kíkti hérna niður á höfn um kvöldmatarleytið og þá var dælan í gangi. Hann var þá búinn að lyftast um einhverja 15 sentimetra frá því um miðjan dag. Mér skilst að hafnarstarfsmenn hafi séð til þess að dælurnar væru í gangi. En svo um sjöleytið í morgun var hann kominn á kaf,“ segir Guðmundur. Í fyrri skiptin tvö fannst ekki skýring á því hvers vegna báturinn sökk. Guðmundur segir hann orðinn lélegan og líkur á að hann leki. Fjölskyldan var ekki tilbúin að farga honum „Það er fjölskylda…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗