One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Íslenska ríkið leigir hjúkrunarrými í Kópavogi fyrir níu milljarða í 20 ár

Íslenska ríkið leigir hjúkrunarrými í Kópavogi fyrir níu milljarða í 20 ár

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 2:35 PM
Íslenska ríkið leigir hjúkrunarrými í Kópavogi fyrir níu milljarða í 20 ár
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 2:35 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Leigusamningurinn hljóðar upp á tæplega 39 milljónir króna á mánuði fyrir rúmlega tíu þúsund fermetra, eða samtals rúmlega níu milljarða króna á næstu tuttugu árum miðað við verðlag dagsins í dag og án tillits til vísitölubreytinga. Samningurinn var gerður 9. september 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024. Hann var gerður að undirlagi heilbrigðisráðuneytisins en Willum Þór Þórsson var heilbrigðisráðherra á þessum tíma. Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem rekur hjúkrunarheimili í húsinu í dag fyrir íslenska ríkið.

Þetta eru þau Sturla Björn Johnsen og Lilja Þórey Guðmundsdóttir, sem er eiginkona framkvæmdastjóra Heilsuverndar, Teits Guðmundssonar, en félög þeirra eiga 50 prósent í húsinu. Hin 50 prósentin eru í eigu félaga fjárfestanna Kristjáns Grétarssonar og Magnúsar Ármann. Fyrirtæki þessara fjögurra aðila sem eiga húsið í Kópavogi heitir Súlur Reykjavík ehf. Það keypti húsið á tæplega 3,5 milljarða króna í október 2024 samkvæmt þinglýstum kaupsamningi. Fjallað er um þennan leigusamning og þjónustusamninginn við Heilsuvernd sem gerður var í mars á þessu ári í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Teitur Guðmundsson hjá Heilsuvernd svarar spurningum um samningana um hjúkrunarrýmin. Teitur segir samninginn gerðan eftir útboð Íslenska ríkið var því búið að gera leigusamninginn við eiganda hússins þegar heilbrigðisráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands gerðu samning…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS