Ísland vann aftur 3-0
What the source reports
Ísland og Búlgaría mættust á Laugardalsvelli í dag í þriðju umferð C-deildar Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta. Ísland vann 3-0. Ísland var fyrir leikinn á toppi riðilsins með fjögur stig eftir 3-0 útisigur á Lúxemborg og 1-1 jafntefli gegn Eistlandi. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson gerði sex breytingar á byrjunarliði Íslands frá sigrinum í Lúxemborg á þriðjudag. Aron Einar Gunnarsson, Hörður Björgvin Magnússon, Andri Fannar Baldursson, Mikael Neville Anderson, Jón Dagur Þorsteinsson og Arnór Sigurðsson komu inn í byrjunarliðið. Úr byrjunarliðinu fóru þeir Logi Tómasson vegna veikinda, Gylfi Þór Sigurðsson, Andri Lucas Guðjohnsen, Stefán Teitur Þórðarson, Daníel Leó Grétarsson og Guðlaugur Victor Pálsson. Þónokkur vindur var á Laugardalsvelli og hafði hann áhrif á sendingar sem margar voru ónákvæmar. Íslenska liðið stýrði leiknum í fyrri hálfleik en átti í vandræðum með að skapa sér færi.
Jón Dagur Þorsteinsson átti fyrsta hættulega færi Íslands á 20. mínútu en Búlgarar björguðu í horn. Sex mínútum síðar fengu Búlgarar dauðafæri en Atanas Iliev skaut yfir markið. Ísinn var loks brotinn á 37. mínútu þegar íslenska liðið náði að opna búlgörsku vörnina. Hákon Arnar átti stungusendingu inn í vítateiginn á Ísak Bergmann sem gerði stórkostlega með því að láta boltann fara og taka með sér varnarmann. Þessi staða skildi Orra Stein Óskarsson eftir óvaldaðan og hann afgreiddi boltann laglega í fjærhornið og kom Íslandi yfir, 1-0 sem var staðan í hálfleik. Orri Steinn skoraði einnig annað mark Íslands og aftur átti Hákon Arnar stóran þátt í því. Á 60. mínútu renndi hann boltanum á Mikael Neville Anderson, hann gaf fyrir á Orra Stein sem kláraði færið af öryggi, 2-0 . Ísand fékk svo vítaspyrnu á 81. mínútu þegar Atanas Iliev sló boltann eftir aukaspyrnu. Orri Steinn steig á…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗