One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandHvernig er að halda úti liðum í Eyjum? Skrýtnar söluræður og nostalgíubúningur

Hvernig er að halda úti liðum í Eyjum? Skrýtnar söluræður og nostalgíubúningur

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 7:01 AM
Hvernig er að halda úti liðum í Eyjum? Skrýtnar söluræður og nostalgíubúningur
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 7:01 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Einhverjir ráku upp stór augu þegar Eyjamenn tóku á móti Valsmönnum í Vestmannaeyjum nýverið. Liðin gerðu 1-1 jafntefli en ÍBV var í hvítum treyjum með rauðum ermum og búningurinn var með Esso-auglýsingu. Eyjamenn urðu Íslandsmeistarar í þessum treyjum tímabilið 1998, þegar bikarinn fór á loft eftir pallaleik í Vesturbænum. Framkvæmdastjórinn og fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson ræddi búningana og þær einstöku áskoranir sem fylgja því að halda úti tveimur liðum í efstu deild í Vestmannaeyjum. Svo er spurning hversu þreyttur hann er orðinn á spurningum um framkvæmdastjórastöðuna. Sáu mynd af Hlyni Stefáns og þá var ekki aftur snúið En hvernig kom það til að endurvekja 1998-búninginn? Af hverju var þetta gert á miðju tímabili? „Þetta kom út úr einhverju spjalli fyrst. Það hékk treyja hérna niðri í Týsheimili, gömul treyja af Hlyni Stefáns. Þannig að við ákváðum að kýla á það að framleiða þetta.

Það var ekkert plan endilega að spila í þessu. Þær áttu að vera komnar fyrr í sumar þar sem við ætluðum að auglýsa þetta og selja þetta, að reyna að hafa þetta á Þjóðhátíð og allt þetta. Það gekk ekki eftir. “ „Það er ekki oft sem félög á Íslandi geta leyft sér að leika í slíkum búningum en Eyjamenn fengu tækifærið þar sem þeir eru á milli samninga. Við erum akkúrat núna á milli samninga. Félagið var að klára samninga við Nike og erum búnir að semja við Macron. Þeir búningar eru náttúrulega ekki komnir. Þannig við ákváðum bara að kýla á þetta. “ Það þekkist að lið selji eldri gerðir af búningum, en það er sjaldgæfara að lið leiki í þeim í deildarkeppni. Alex segir að Eyjafólk sé spennt fyrir útgáfunni. „Fólk er spennt fyrir þessu. Þetta fór fram úr björtustu vonum. Það voru mjög margir jákvæðir fyrir þessu og hafa gaman af þessu. Þannig að þá er markmiðinu náð. “ „Samningurinn er í…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS