One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Hvað leysti deilu kennara, sveitarfélaga og ríkis á síðustu stundu?

Hvað leysti deilu kennara, sveitarfélaga og ríkis á síðustu stundu?

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 1, 2026, 12:50 PM
Hvað leysti deilu kennara, sveitarfélaga og ríkis á síðustu stundu?
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 1, 2026, 12:50 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Tillaga ríkissáttasemjara til samninganefnda Kennarasambandsins, ríkis og sveitarfélaga um lausn í deilu þeirra fólst í því að endurskoðunarpunktur var færður til 15. mars, samkvæmt upplýsingum frá Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara. Hvað er endurskoðunarpunktur? Það er tímapunktur í kjarasamningunum, forsenduákvæði, þar sem kjarasamningurinn er rýndur og kannað hvort forsendur hans hafi staðist.

Í kennarasamningnum var slíkur tímapunktur í gær, þar sem kennurum fannst forsendur kjarasamningsins hafa brostið vegna þess að kennarasambandið taldi að vinnan við virðismatið hefði gengið of hægt. Og kennarar hefðu þá getað sagt kjarasamningnum upp fyrir miðnætti í gær. Ríkissáttasemjari bauð deiluaðilum á sinn fund í gær og lagði fram tillöguna um nýjan endurskoðunarpunkt. Hvað er virðismat? Virðismat er aðferð sem er notuð til að ákveða virði starfa og laun í framhaldinu. Þættir sem eru metnir eru þekking, færni, álag, reynsla, ábyrgð og vinnuaðstæður. Kennarar sömdu um þetta í síðustu kjarasamningum. Hvað gerist ef samningsaðilar meta það sem svo að það verði sama staða og er núna – þann 15. mars? Ríkissáttasemjara segir að stefnan sé að í mars verði komin skýrari mynd af…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS