One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandHvað eru varnarefni í matvælum?

Hvað eru varnarefni í matvælum?

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 9:19 AM
Hvað eru varnarefni í matvælum?
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 9:19 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Heildsalan Bananar inkallaði nýlega Pinkids epli vegna ólöglegs varnarefnis. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem matvara er innkölluð vegna varnarefna. Þó að varnarefni í matvælum hljómi ekkert sérstaklega vel þá eru þau í mjög mörgu og þjóna sínum tilgangi. Hvað eru varnarefni og hvaða tilgangi þjóna þau? Varnarefni eru eiturefni sem eru meðal annars notuð við ræktun kornvöru, ávaxta og grænmetis til að vernda gegn skordýrum, illgresi, myglu og öðrum skaðvöldum. Notkun þeirra er háð reglum og fyrir hvert efni eru ákveðin hámarksgildi leyfð í mismunandi matvælum. Þeim er oftast skipt í fjóra flokka, það er skordýraeitur, illgresiseyða, sveppalyf og stýriefni, sem stjórna vexti plantna. „Í tilfelli Pink lady-eplanna var um að ræða bifenthrin, efni sem er ekki leyfilegt á Íslandi og má ekki greinast í eplum,“ segir Natasa Desnica, fagstjóri efnamælinga hjá Matís. Af hverju er bifenthrin bannað?

Bifenthrin, efnið sem greindist í eplunum, er skordýraeitur. Það verkar á taugakerfi skordýra og getur einnig haft áhrif á taugakerfi spendýra við nægilega mikla útsetningu. Efnið er ekki lengur samþykkt til notkunar í plöntuverndarvörum innan ESB/EES sem Ísland fylgir. Samþykkið rann út 2019 eftir að umsókn um endurnýjun þess var dregin til baka. Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur jafnframt bent á að fyrirliggjandi rannsóknargögn fullnægi ekki núverandi vísindalegum kröfum til að hægt sé að ljúka áhættumati efnisins með fullri vissu. Mörg varnarefni geta verið skaðleg heilsu í of miklu magni. Hér á landi gilda strangar reglur um notkun þeirra og sett eru hámarksgildi fyrir það magn varnarefnaleifa sem má vera í matvælum og öðrum vörum. Viðmiðin eru ólík eftir löndum og til dæmis í Bandaríkjunum, Suður-Ameríku og Asíu eru leyfileg mörk mun hærri. Þá er leyfilegt að nota efni í…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS