One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Hugurinn kominn á réttan stað og nú er allt að smella

Hugurinn kominn á réttan stað og nú er allt að smella

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 2, 2026, 6:00 AM
Hugurinn kominn á réttan stað og nú er allt að smella
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 2, 2026, 6:00 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Andrea Kolbeinsdóttir hefur gert það gott á hlaupabrautinni undanfarið. Um síðustu helgi vann hún eitt af stærri utanvegahlaupum heims í Suður-Kóreu. Andrea er nýlega orðin atvinnuhlaupari og sigurinn vitanlega stórt skref á hennar ferli. Þetta var lokakeppni ársins í Golden Trail World Series sem er með stærri hlaupaseríum í heimi. Andrea segir sigurinn hafa verið óvæntan. „Það er svona fyndið að maður hafði trú á því að maður gæti unnið en var ekkert endilega að búast við því að vinna það í alvörunni þannig að já, ég held ég hafi komið öllum á óvart um síðustu helgi. “ Rifbeinið brákað en það kom ekki að sök Andrea hafði dottið viku fyrir hlaupið og brákað rifbein. Hún var meðvituð um eymslin og var fremur stressuð um að detta í hlaupinu. Það gerðist svo í miðju hlaupi.

„Ég negldi í tré akkúrat á hliðina, á síðuna sem ég er með brákað rifbein þannig að ég fann alveg svona að verkurinn varð aðeins meiri við það en þá var ég að leiða hlaupið og maður var ekkert að hugsa um það í hlaupinu en svo bara strax og hlaupið var búið þá fann ég meira fyrir verknum en það var ekkert að trufla í miðju hlaupi. “ Hlaupakonan Andrea Kolbeinsdóttir vann síðustu helgi eitt af stærri utanvegarhlaupum heims í Suður-Kóreu. Við fengum að kíkja á æfingu hjá henni og spurðum hana út í hlaupið, andlega þjálfun og YouTube-rás hennar. Í lok september vann Andrea einnig stórt mót í Frakklandi þar sem hlaupaleiðin var 50 kílómetrar. „Ég er ótrúlega ánægð með það hlaup og hvernig það gekk. Ég er bara á ótrúlega góðum stað bæði með hausinn og formið og bara allt einhvern veginn búið að smella síðustu mánuði. Þannig að það var mjög gaman að vinna það líka. “ Þar með hafi hún tryggt sér þátttökurétt í úrslitahlaupi UTMB-seríunnar að ári. UTMB er, eins og Golden Trail, með sterkustu hlaupaseríum heims.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS