Hútar herða tökin við Rauðahaf og olíuverð heldur áfram að hækka
What the source reports
Hútar náðu völdum yfir hafnarborginni Mocha í Jemen í dag. Þeir segja öll skip geta siglt örugg um Rauðahaf, nema skip frá Sádi-Arabíu. Heimildarmenn Reuters úr jemenska stjórnarhernum segja Húta hafa aukið ítök sín við Bab el-Mandeb-sund. Um það liggur ein mikilvægasta siglingaleið heims, til suðurs úr Rauðahafi. Sádi-Arabar hafa stólað á siglingar um sundið eftir að Hormússund lokaðist nær alveg vegna stríðs Bandaríkjanna við Íran. Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabar.
Olíuverð rýkur upp Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um fimm prósent í dag eftir þessi tíðindi og verðið á Brent-norðursjávarolíu fór yfir hundrað og fimm dali á tunnu. Það rauf hundrað dala múrinn í gær í fyrsta sinn síðan í júlí. Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen. Hundruð þúsunda hafa farist í borgarastyrjöldinni í Jemen sem hófst ári fyrr. Hútar og alþjóðlega viðurkennd stjórn landsins sömdu um vopnahlé 2022. Þrátt fyrir að það hafi fallið skömmu síðar úr gildi hafði vopnahléð haldið að mestu þar til nýlega. Væringar gætu reynst Írönum vel Hútar eru hliðhollir Írönum og ef þeir ná fullum tökum á Bab…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗