Hitafundur á Raufarhöfn
What the source reports
Franska fyrirtækið Qair efndi til kynningarfundar á samfélagslegum og umhverfisáhrifum sem vindorkuver á Hnotasteini myndi hafa á nærumhverfið. Fundurinn fór fram á Raufarhöfn í hádeginu í dag og sambærilegur fundur fór fram á Kópaskeri í gærkvöld. Íbúar fjölmenntu á fundina og létu í sér heyra. Betur var mætt á Kópaskeri en íbúar á Raufarhöfn kvörtuðu yfir því að þessi fundur væri í hádeginu á föstudegi.
Fundurinn var á vegum Qair, fyrirtækis sem áformar að reisa 30 vindmyllur á Hólaheiði í Norðurþingi. Þar kynntu þeir niðurstöður umhverfismats vegna vindorkuversins. Sömuleiðis kynntu þeir niðurstöður sínar á samfélagslegum áhrifum uppbyggingarinnar. Samkvæmt könnun Maskínu fyrir Qair eru 53% íbúa Kópaskers andvíg vindorkuveri og 41% íbúa á Raufarhöfn. Forsvarsmenn Qair telja að vindorkuver myndi skila sveitarfélaginu Norðurþingi yfir fimm milljörðum í tekjur á næstu 25 árum og sömuleiðis tryggja 470 ársverk á meðan á uppbyggingu stendur. Sjötti áfangi…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗