One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Hakkarar frá Norður-Kóreu blekktu starfsmann rafmyntamiðlara

Hakkarar frá Norður-Kóreu blekktu starfsmann rafmyntamiðlara

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 31, 2026, 2:38 PM
Hakkarar frá Norður-Kóreu blekktu starfsmann rafmyntamiðlara
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 31, 2026, 2:38 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Það tók ekki nema stutta stund, eða í kringum 20 mínútur, fyrir árásaraðilana að brjótast þarna inn. Það áhugaverða við þetta er að það var í rauninni ekki hakkað bitcoin sjálft eða blokkarkeðjuna heldur er talið að það hafi verið tekið yfir fartölvu starfsmanns sem var með svolítið víðar heimildir. “ Þetta segir Ingólfur Andri Ágústsson, netöryggissérfræðingur hjá OK. Margt bendir til þess að hakkarahópur frá Norður-Kóreu hafi staðið að stuldi milljarða dala frá rafmyntakauphöllinni Binance. Hakkarahópurinn heitir TraderTraitor og er talinn vera hluti af Lazarus-hópnum sem nýtur stuðnings norðurkóreska ríkisins.

„Ástæðan fyrir því að hann liggur undir grun er af því að þeir hafa tekið þrjár aðrar stórar svona Bitcoin-árásir sem FBI [bandaríska alríkislögreglan] hefur tengt þá við en það hefur ekki endilega verið staðfest,“ segir Ingólfur. Ingólfur segir hópinn starfa þannig að hann finni skotmörk með því að nýta sér mannlega þáttinn. „Byggja upp eitthvað traust og dreifa svo spilliforritum til að komast inn á aðganga hjá einmitt svona aðilum. Þess vegna út frá fyrstu fréttum að þetta hafi verið í gegnum aðgang hjá starfsmanni þá liggja þeir undir grun. “ Áhrif á um 780 milljarða íslenskra króna Binance er stærsta rafmyntakauphöll heims og varð fyrir umfangsmikilli og flókinni tölvuárás á dögunum. Árásin hafði áhrif á um 780 milljarða íslenskra króna.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS