One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandHafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf

Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 23, 2026, 9:31 PM
Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 23, 2026, 9:31 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir þá stöðu sem uppi sé innan SÁÁ vonbrigði, traust á stjórn SÁÁ hafi beðið hnekki. „Það er ekkert útilokað fyrir stjórnina að snúa þessari þróun við og nái tökum á stöðunni. “ Deilurnar innan SÁÁ hafa verið hatrammar og að mörgu leyti illskiljanlegar. Stjórn félagsins er sökuð um að hafa reynt að hafa áhrif á faglega heilbrigðisþjónustu, forstjórinn, yfirlæknir og fleiri lykilstarfsmenn hafa horfið frá störfum. Stjórnin situr samt sem fastast og hefur ráðið nýja yfirmenn en áfram ganga skeyti á milli þess fólks sem telur sig málið varða. Stjórn SÁÁ hefur nokkrar vikur til þess að koma meðferðarstarfseminni í eðlilegt horf segir heilbrigðisráðherra. Ljóst sé að traust á stjórn SÁÁ hafi beðið hnekki.

Skapa þurfi traust með því að uppfylla samning og koma þjónustu í gang. Hafa nokkrar vikur til að koma meðferðarstarfseminni í eðlilegt horf Alma segir stjórnina hafa nokkrar vikur til þess að koma meðferðarstarfseminni í eðlilegt horf, allir sem komið hafi að málinu séu allir af vilja gerðir til að veita aðstoð „Við sem höfum verið að koma að þessum málum, ég sem heilbrigðisráðherra, landlæknir og forstjóri Sjúkratrygginga, erum öll af vilja gerð til að aðstoða stjórnina. “ Landlæknisembættið sinnir daglegu eftirliti með mönnun á Vogi en heilbrigðisráðuneytið hefur ekki heimild til þess að stíga inn í starfsemina vegna þess að hún er ekki ríkisrekin. Landlæknir hefur þó heimild til þess að gefa stofnuninni tilmæli. „Ef ekki er brugðist nægilega vel við því þá ráðleggur…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS