Hættan af hraðakstri í brennidepli á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa
What the source reports
Hættan sem fylgir hraðakstri ungmenna og ungir vegfarendur verða í brennidepli á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember. Hraðakstur er álitinn ein helsta orsök alvarlegra umferðarslysa og banaslysa, ekki síst meðal ungs fólks, að því er segir á vef Stjórnarráðsins . Maður sem ungur að árum varð valdur að banaslysi segir reynslusögu sína við hefðbundna minningarathöfn við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi auk þess sem Halla Tómasdóttir forseti og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja ávörp.
Mikil umræða hefur verið um hraðakstur meðal ungs fólks eftir að fjögur ungmenni létust í tveimur slysum á þessu ári og var meðal annars til umfjöllunar á umferðarþingi í september. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur stungið upp á að auka aðgengi ungs fólks að akstursíþróttum svo það geti fengið útrás fyrir löngunina til hraðaksturs á vegum úti. Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna og er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert. Unglingadeildir björgunarsveita gegna lykilhlutverki við minningarathafnir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar um allt land. Frá því…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗