Høiby fær að áfrýja nauðgunardómum
What the source reports
Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit, drottningar Noregs og stjúpsonur Hákonar Noregskonungs fær að áfrýja máli sínu. Hann var sakfelldur fyrir tvær nauðganir og 32 önnur brot í héraðsdómi í Osló í júní, þar á meðal brot í nánu sambandi, ofbeldisbrot og fyrir að rjúfa nálgunarbann í nokkur skipti. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi en sætir stofufangelsi á heimili sínu.
Hann fékk leyfi til að fara þaðan í gær til að vera við útför Haraldar V Noregskonungs. Petar Sekulic, lögfræðingur Høiby, sagði við norska ríkisútvarpið NRK að viðbúið hafi verið að áfrýjunin í heild sinni yrði samþykkt. Ný réttarhöld ættu að taka fjórar vikur en dagsetning hefur ekki verið ákveðin. Høiby neitaði ávallt sök í alvarlegustu ákæruliðunum og sótti um áfrýjun á dómum sem kveðnir voru upp yfir honum fyrir nauðganir og brot í nánu sambandi. Áfrýjunardómstóll í Ósló…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗