Hægt á verðhækkunum á matvöru – grænmeti hækkaði mest
What the source reports
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í upphafi árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Frá ágúst 2025 til september 2026 hefur dagvöruverðsvísitalan hækkað um 3,4%. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru síðustu misseri eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru. Verð hækkaði í flestum dagvöruflokkum frá ágúst 2025 til september 2026 og þar mældist mesta hækkunin á grænmeti – sem hækkaði um 18% á tímabilinu þrátt fyrir nokkra lækkun yfir sumarmánuðina.
„Sveiflurnar voru mun meiri í þessum vöruflokkum en í öðrum vöruflokkum. Það endurspeglar meðal annars að verð á ferskvöru getur tekið hröðum breytingum milli mánaða og eftir árstíðum. “ Kjötvörur hækkuðu í öllum flokkum milli ára. Mest hækkaði lambakjöt, um 6,2%, og fuglakjöt um 5,7%. Unnið, reykt og saltað kjöt hækkaði um 4,9% og svínakjöt um 4,8%. „Verðlagseftirlitið hefur áður vakið athygli á miklum verðhækkunum á kjötvörum. Þó að dregið hafi úr verðhækkunum eru þær áfram sá liður sem drífur áfram verðhækkanir á matvöru. “ Verð hækkaði einnig á öllum helstu mjólkurvörum. Ostar hækkuðu um 4,3% og smjör um 4,2%. Léttmjólk og undanrenna hækkuðu um 3,6%, súrmjólk, skyr og rjómi um 3,5%…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗