One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum

Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 3, 2026, 3:06 PM
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 3, 2026, 3:06 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða um land. „Á norðanverðum Vestfjörðum hafa fallið bæði grjóthrun og skriður, mest áberandi var stór skriða sem féll á Hnífsdalsveg í gær, 2. október. Í dag, laugardag, er von á lægð yfir landið sem með fylgir úrkoma,“ segir þar.

„Heildarúrkoma sem fylgir lægðinni er ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu, en þar sem jarðvegur er þegar orðinn vatnsmettaður getur lítil viðbótarúrkoma nægt til að koma af stað hreyfingum í hlíðum og aukið líkur á skriðuföllum. “ Á vef Veðurstofunnar er hægt að fylgjast með skráðum skriðum á svæðinu. Þar segir að athyglisverð virkni hafi verið í Gleiðarhjalla síðustu daga. Svæðið geti verið viðkvæmt í kjölfar langvarandi úrkomu. Gleiðarhjalli er hilla í Hlíðarfjalli fyrir ofan Ísafjörð í Skutulsfirði. „Skriða féll í Eyrarhlíð í gær, föstudaginn 2. október, sem var 20 metra breið á veginum. Vegna áframhaldandi úrkomu í dag eru líkur á frekari virkni í Gleiðarhjalla og Eyrarhlíð. Búast má við skyndilegum vegalokunum,…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS