Guðmundur Flóki stefnir á ólympíugull
What the source reports
Guðmundur Flóki vann til silfurverðlauna á alþjóðlega stigamótinu Dracula Open í taekwondo sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu um helgina. Hann vann fjóra bardaga á leið sinni í úrslit í flokki undir 87 kílóum, meðal annars gegn keppendum sem hafa tekið þátt í Ólympíuleikum eða eru meðal tíu efstu á heimslistanum. Guðmundur Flóki keppir alla jafna í flokki undir 80 kílóum og er þar í 22. sæti heimslistans. Hann keppti þó að þessu sinni í þyngri flokki. „Ég var í rauninni að prófa nýjan þyngdarflokk á mótinu og fór ekki með neinar væntingar. En maður fer nú alltaf inn með sama hugarfarið og reynir að gera sitt besta í hverjum bardaga og komast lengra,“ segir Flóki við RÚV. Guðmundur Flóki Sigurjónsson vann til silfurverðlauna á sterku alþjóðlegu stigamóti í taekwondo í Rúmeníu um helginaþ Hann segir markmiðið ekki aðeins að komast á Ólympíuleikana, heldur dreymi hann um að vinna þar gullverðlaun.
En var það framar vonum að þú skyldir fara alla leið og enda í öðru sæti? „Já, ég myndi segja það. Það voru fimm bardagar, ég sigraði fyrstu fjóra og tapaði svo úrslitabardaganum. Já, þetta var framar vonum. En maður gerir alltaf ráð fyrir því besta og vonar það besta. “ Fékk aukið sjálfstraust með hverri raun Með hverjum sigrinum efldist Guðmundur Flóki og fékk aukið sjálfstraust. „Já, ég myndi segja það. Í öðrum bardaganum lenti ég á móti manni sem er númer átta á heimslistanum og sigraði hann. Eftir það var annar sem var ekki jafn hátt skrifaður og þá fær maður smá sjálfstraust við það. Svo gekk næsti og svo næsti og bara gekk allt vel. Þetta var langur dagur,“ segir taekwondo-kappinn. En hvaða þýðingu hefur þessi árangur fyrir Guðmund Flóka, ekki síst að hafa unnið keppendur úr hópi þeirra bestu í heiminum? „Bara að ég eigi heima þarna, í rauninni. Þetta er ekki í fyrsta sinn…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗