Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
What the source reports
Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann gegndi embætti mennta- og barnamálaráðherra, þrýsti á hann að tilkynna um afsögn þegar hann var nýútskrifaður af spítala. Þá hafði þegar verið ákveðið að Guðmundur skyldi láta af embætti, þvert á hans vilja. Í skilaboðunum, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir Guðbjörg Guðmundi að tveir kostir séu í stöðunni fyrir hann: að tilkynna um afsögn og snúa til baka á Alþingi eftir veikindaleyfi eða stríð. Guðmundur Ingi var þá í leyfi eftir hjartaaðgerð. Þegar hafði verið greint frá því að til stæði að Ragnar Þór Ingólfsson, eiginmaður Guðbjargar, tæki sæti í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur í hans stað. Guðmundur heyrði fyrst af áformunum degi áður en hann fékk skilaboðin, í símtali við aðstoðarmann Ingu Sæland.
Í skilaboðum Guðbjargar kom jafnframt fram að ákvörðunin um að Guðmundur léti af embætti væri alfarið Valkyrjanna, þvert á það sem Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur sagt. Gert að segja af sér á sjúkrabeði Guðmundur Ingi sagði í viðtali við fréttastofu RÚV í síðustu viku að sér hefði verið gert að segja af sér ráðherraembætti á sjúkrabeði. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og núverandi mennta- og barnamálaráðherra, hefði hringt í eiginkonu hans á þriðja degi jóla þegar hann lá inni á spítala eftir hjartaaðgerð og krafist þess að fá að hitta hann. Þar hefði átt að gera honum ljóst að hann yrði að hætta sem ráðherra. Inga sagði að Guðmundur Ingi væri ekki að greina rétt frá. Upplifun hennar af aðdraganda afsagnar hans væri önnur og að ákvörðunin hefði verið hans eigin. Í sama viðtali sagði Guðmundur Ingi frá skilaboðum frá aðstoðarmanni sínum, Guðbjörgu Ingunni. Hann sagði að hún hefði sent sér texta sem hann átti að birta með afsögn sinni. Honum hefði…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗