Grunaður um að veita konu sinni lífshættulega áverka: Fundu blóðuga exi á heimili parsins
What the source reports
Lögregla var kölluð til 17. júlí eftir að konan leitaði sér aðstoðar á bráðamótttöku. Maðurinn fylgdi konunni á bráðamótttöku og var handtekinn eftir að starfsmenn gerðu lögreglu viðvart. Konan kvaðst í fyrstu hafa veitt sér áverkana sjálf með því að brjóta mjólkurglas á höfði sér. Samkvæmt bráðabirgðavottorði vaknaði aftur á móti strax sterkur grunur um að hún hafi orðið fyrir líkamsárás með vopni. Læknir mat áverka hennar lífshættulega. Konan hlaut höfuðkúpubrot, kjálkabrot og brot á andlitsbeinum.
Vissi ekki hvort höggin hefðu verið veitt með hendi eða áhaldi Í skýrslutöku á slysadeild sagðist konan hafa rifist við kærasta sinn fyrr um daginn og hann farið til vinar síns í kjölfarið. Hann hefði fyrst komið heim um tvöleytið um nótina. Hann hefði þá veist að henni með ofbeldi. Hann hefði verið með hamar og exi en hún vissi ekki hvort hann notaði hendi eða áhald til að veita henni höggin. Frændi hennar hefði skutlað þeim á slysadeild. Frændi konunnar sagði lögreglu konuna hafa tjáð sér að kærastinn hefði beitt hana ofbeldi. Lögregla gerði húsleit á heimili parsins og fann þar blóðuga exi,…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗