One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIceland„Gríðarlegur léttir fyrir Grænlendinga að samningur sé í höfn“

„Gríðarlegur léttir fyrir Grænlendinga að samningur sé í höfn“

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 22, 2026, 9:40 PM
„Gríðarlegur léttir fyrir Grænlendinga að samningur sé í höfn“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 22, 2026, 9:40 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Það má segja að Grænland fái mest út úr þessum samningi,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, um varnarsamninginn sem Danir, Bandaríkjamenn og Grænlendingar undirrituðu í dag. „Auðvitað er þetta í fyrsta lagi gríðarlegur léttir fyrir Grænlendinga að samningur sé í höfn og að vonandi fái samfélagið bara að vera í friði. “ Grænland hefur fulla aðild að samningnum að sögn Vilborgar sem veiti þeim aukið vægi í ákvarðanatöku. „Grænland getur orðið sjálfstætt ríki og samningurinn heldur og það er talið vera grundvallaratriði fyrir sjálfstæði Grænlands. “ Vilborg segir ekki öruggt að Trump muni hætta að tala um að Bandaríkin eignist Grænland.

„En vonir standa að minnsta kosti til að þetta haldist og að nú komist ró á þessi mál. “ Líka léttir fyrir Íslendinga Vilborg segir líka létti fyrir Íslendinga að samningur hafi náðst. „Það gætu verið einhver efnahagsleg tækifæri sem gætu falist í þessum umsvifum en sömuleiðis gæti einhverjum fundist þetta neikvætt, aukin hernaðarleg umsvif á okkar svæði, í okkar næsta nágrenni. “ Samningurinn byggist á varnarsamningi sem var fyrst undirritaður 1951 og uppfærður 2004. Samkvæmt honum fá Bandaríkin tvær nýjar herstöðvar, í Narsarsuaq, þar sem hefur verið bandarísk herstöð áður, og Mestersvig. Þau mega líka stækka herstöðina í Pituffik og hafa möguleika á að auka umsvif sín enn frekar, meðal annars með því að fjölga varnarsvæðum. Þá eiga Bandaríkin rétt á að gera athugasemdir við…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS