One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Greiða úr bókunum ferðamanna sem höfðu bókað gistingu í turninum

Greiða úr bókunum ferðamanna sem höfðu bókað gistingu í turninum

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 4, 2026, 12:13 PM
Greiða úr bókunum ferðamanna sem höfðu bókað gistingu í turninum
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 4, 2026, 12:13 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Stöðvun framkvæmda við byggingu hótelturnsins á Skúlagötu hefur all nokkur áhrif á ferðaþjónustu. Búið var að bóka gistingu fyrir ferðamenn allt fram til ársins 2028. Fréttastofa greindi frá því í gær að framkvæmdir við byggingu 17 hæða Radisson Red hótels við Skúlagötu hefðu verið stöðvaðar. Öllum verktökum var gert að yfirgefa byggingarsvæðið á mánudaginn með þeim skýringum að búið væri að loka fyrir frekari fjárveitingar til verkefnisins. Um nokkurt skeið hefur verið sagt að opnun hótelsins væri á næsta leiti.

Það hefur þó dregist töluvert, meðal annars vegna þess að fullbúnar gámaeiningar sem fluttar voru til landsins urðu fyrir vatnstjóni. Hótelherbergin áttu að vera rúmlega tvö hundruð talsins og var þegar byrjað að taka við bókunum, jafnvel fram til ársins 2028. Viðmælendur fréttastofu innan ferðaþjónustunnar segja að áður en framkvæmdin hafi verið stöðvuð hafi þegar verið búið að bóka ferðamenn á önnur hótel vegna tafa en nú taki við vinna við að endurbóka alla þá sem áttu bókaða gistingu á Radisson Red. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu, segir tíðindin…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS