Glæpamenn í barnavernd á Íslandi og í Noregi: „Það gildir bara mjög skýrt ákvæði“
What the source reports
Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Fréttirnar vöktu mikla athygli í landinu. Þetta segir Ida Wangberg sem er einn af blaðamönnum norska blaðsins Klassekampen sem opinberaði þetta mál í lok ágúst á þessu ári. Ida segir allt útlit fyrir að þessar fréttir muni hafa mikil áhrif á þennan málaflokk í Noregi, að eftirlit með þess konar fyrirtækjum verði aukið og að norska ríkið muni í auknum mæli bjóða sjálft upp á þessa þjónustu í framtíðinni. Þessar fréttir frá Noregi tala inn í umræðu um einkarekin barnaverndarúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda sem nú á sér stað eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um þess konar fyrirtæki nú á þriðjudaginn.
Þar var meðal annars sagt frá tveimur tilfellum þar sem menn með dóma á bakinu unnu hjá einkareknum barnaverndarfyrirtækjum á Íslandi. Fjallað var um tengingar manna úr undirheimunum í Noregi og á Íslandi við einkarekin barnaverndarfyrirtæki í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér: Tengsl glæpamanna í undirheimum Noregs við einkarekin barnaverndarfyrirtæki hafa verið til umræðu í landinu. Hið sama kom upp í vikunni í umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks. Er þetta álíka vandamál á Íslandi og í Noregi? Umfangið annað en í Noregi Hversu algengt er það að menn sem eru refsidóma starfi fyrir slík fyrirtæki á Íslandi? Þyrí Halla Steingrímsdóttir er framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. Hún segir að það sé að hennar viti ekki algengt þó að tvö dæmi hafi komið fram í þætti Kveiks: „Nei, við höfum ekki orðið vör við það og ég þekki ekki alveg þessa umræðu. En kannski bara í þessu sambandi þá þarf að benda á það hversu mikilvægt það sé að viðhaft sé eftirlit…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗