One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandGervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu

Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 10:53 AM
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 10:53 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét áströlsk stjórnvöld ekki vita af atvikinu fyrr en núna í september. Komst í gögn og tölfræði, ekki persónuupplýsingar Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, greindi frá atvikinu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem er í New York þessa dagana. Gervigreindin komst inn í tölvukerfið í júní. Hún komst í opinbera vefgátt fyrir tölfræðigögn um Medicare án heimildar. Öryggisbresturinn er til rannsóknar hjá áströlskum stjórnvöldum en olli miklum áhyggjum í Ástralíu. Yfir 27 milljónir eru sjúkratryggðar í gegnum kerfið.

Viðkvæmar persónuupplýsingar eru ekki geymdar í vefgáttinni heldur gögn og tölfræði um rekstur kerfisins, meðal annars útgjöld þess. Albanese segir gervigreindina hafa fengið aðgang að opinberum og óopinberum gögnum í vefgáttinni. OpenAI sagði í tilkynningu að gervigreindarlíkanið hefði verið að reyna að afla tiltækra tölfræðigagna til að svara spurningum um Ástralíu í innra mati fyrirtækisins. Það fékk ekki aðgang að neinum sjúkraskrám, einungis samantekt á tölfræði. Við framkvæmd verkefnisins leitaði það meðal annars í Medicare-vefgáttinni, auk þriggja annarra ástralskra vefsíðna. Atvikið algjörlega óásættanlegt Albanese segist hafa rætt við Sam Altman, forstjóra OpenAI í gær til að lýsa yfir miklum áhyggjum af atvikinu. „Ég lýsti einnig yfir vonbrigðum með að það hafi tekið fyrirtækið alltof langan tíma að upplýsa ríkisstjórnina um hvað…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS