Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
What the source reports
Mikhail Kasyanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki reiðubúinn til að semja um stríðslok í Úkraínu. Hann þori ekki að viðurkenna að hann hafi gert mistök. Kasyanov var forsætisráðherra Rússlands frá 2000 til 2004. Í viðtali við AFP segir hann Rússlandsforseta hafa málað sig út í horn. Pútín hafi gert þau hrapallegu mistök að trúa öryggisráði sínu um að Úkraína væri veikburða fyrir innrásina árið 2022. Hann segist því ekki viss um að stríðið taki enda á næsta ári, þrátt fyrir stígandi efnahagsvanda og óróleika meðal rússnesku þjóðarinnar. Pútín sé enn sannfærður um að hann geti haldið út gegn Úkraínumönnum og megi ekki sýna veikleika með því að gefast upp.
Rússar hvöttu diplómata og útlendinga til að yfirgefa Kyiv í dag og boðuðu miklar loftárásir á borgina, aðeins nokkrum klukkustundum eftir árás þeirra á brú í borginni þar sem tveir særðust. Vesturlöndin þurfi að þétta raðirnar og ekki óttast Pútín Kasyanov segir Pútín eflaust gleðjast vegna ágreinings á milli Bandaríkjanna og Evrópu um hvernig skuli takast á við innrásarstríð Rússa í Úkraínu, sem og hækkun olíuverðs vegna átaka Bandaríkjanna við Íran. Stærstu mistök Vesturlanda og Evrópubúa séu að óttast Pútín of mikið. Hann sé ekki jafn sterkur og hann virðist og óttist kjarnorkuhnappinn meira en margir Evrópubúar. Kasyanov segir Pútín ekki siðblindan líkt og margir telji heldur útreiknaðan bölsýnismann. Fjölþáttaárásir hans á bandamenn Úkraínu séu beint upp úr verkfærakistu KGB, leyniþjónustu Sovétríkjanna, sem Pútín var hluti af á sínum tíma. Þeim sé ætlað að ögra, en Pútín hyggi ekki á stríð við Evrópu að hans mati. Hann vilji fyrst og fremst þvinga fram virðingu þeirra og viðurkenningu. Kasyanov segir að gera…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗