One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandForstjóri Bláa Lónsins: Komum sterkari út úr þessari heimatilbúnu áskorun

Forstjóri Bláa Lónsins: Komum sterkari út úr þessari heimatilbúnu áskorun

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 10, 2026, 9:59 AM
Forstjóri Bláa Lónsins: Komum sterkari út úr þessari heimatilbúnu áskorun
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 10, 2026, 9:59 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Baðlónum hefur fjölgað töluvert á Íslandi á undanförnum áratug eða svo. Þau nýjustu – Reykjaböðin við Hveragerði – opnuðu um helgina. Þar með eru baðlónin orðin tólf og þar af hafa fimm opnað á síðustu fimm árum. Sögufrægasta baðlón landsins er Bláa lónið og Bláa Lónið hf. er langstærsta félagið í þessum bransa. Þar er ýmislegt á döfinni og í nóvember verða töluverð tímamót í rekstri félagsins, en þá er stefnt að því að skrá félagið á hlutabréfamarkað. 20 milljarða fjárfesting í Þjórsárdal Langt er síðan rekstur Bláa Lónsins hf. snerist eingöngu um Bláa lónið sjálft. Starfsemin er mun fjölbreyttari, dótturfélögin eru níu og félagið hefur stækkað á alla kanta. Það á stóran hlut í fjórum öðrum baðlónum – við Mývatn, Húsavík, Egilsstaði og Laugarvatn – og fyrir þremur árum opnaði félagið hótel og fjallaböð í Kerlingarfjöllum.

Þessa dagana reisir félagið lúxushótel og fjallaböð í Þjórsárdal sem kosta um 20 milljarða samkvæmt áætlunum og er þetta eitt stærsta verkefni á sviði ferðaþjónustu sem ráðist hefur verið í hér á landi. Hér er ýmislegt óupptalið, s. s. snyrtivörulína, lúxushótel og Michelin-stjörnu-veitingastaður, en þetta verður látið nægja í bili. Ísland í einstakri stöðu en við ekki nógu dugleg að stilla saman strengi Þótt umsvif Bláa Lónsins hafi aukist eru megintekjur félagsins þó enn af lóninu við Svartsengi og því mikilvægt fyrir reksturinn að fólk vilji áfram baða sig þar. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, segir að félagið standi mjög vel og hafi komið sterkar út úr þeim áskorunum sem félagið hefur þurft að takast á við að undanförnu og vísar til covid-faraldursins og eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. Hún er mjög ánægð með sumarið. Velgengni Bláa Lónsins sé þó háð því að íslenskri ferðaþjónustu gangi almennt vel og því miður hafi Ísland tapað…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS