Forsendur fyrir skólahaldi og fasteignakaupum í Grindavík
What the source reports
Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar. Miðað við þær eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar að því gefnu að gerðar séu nauðsynlegar öryggisráðstafanir. Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær boða til opins fundar í Gjánni í Grindavík klukkan átta í kvöld þar sem niðurstöðurnar verða kynntar íbúum.
Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að niðurstöðurnar skapi grundvöll fyrir næstu skref við endurreisn Grindavíkur, meðal annars með því að hefja undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum. Sambærilegt öðrum byggðarlögum sem búa við náttúruvá Í apríl var það mat Grindavíkurnefndar að ekki væru forsendur til að hefja skólahald að nýju í Grindavík. Það mat féll aftur á móti ekki í góðan jarðveg á meðal Grindvíkinga og ákvað bæjarstjórnin að hefja samt skólastarf í bænum eftir rúmlega þriggja ára hlé. Síðan þá hefur nýtt áhættumat verið unnið af hópi sérfræðinga, stjórnvöldum og fulltrúum Grindvíkinga. Samkvæmt því eru aðstæður í Grindavík sambærilegar við aðra bæi sem búa við…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗