Forgotten Lores troða upp í fyrsta sinn í áratug
What the source reports
Rappsveitin Forgotten Lores kemur saman á 20 ára afmælistónleikum plötunnar Frá heimsenda á næsta ári. Hljómsveitin lék síðast á tónleikum fyrir almenning árið 2017. Tónleikarnir verða í maí en síðar verður greint frá staðsetningu þeirra. „Þótt Frá heimsenda verði í aðalhlutverki verður kvöldið ekki bundið við eina plötu. Forgotten Lores ætlar að fara yfir sögu sveitarinnar, rifja upp eldri lög og draga fram tónlist frá ólíkum tímabilum ferilsins,“ segir í tilkynningu um tónleikana. Rappkóngar Forgotten Lores á rætur að rekja til ársins 2000, þótt liðsmenn sveitarinnar hafi verið farnir að prófa sig áfram í hipphoppi fyrir aldamótin. Sveitina skipa þrír rapparar og tveir plötusnúðar, Byrkir B. , Class B. , Diddi Fel, DJ B-Ruff og Introbeats.
Fyrsta platan þeirra, Týndi hlekkurinn , kom út árið 2003. Rappsveitin fylgdi henni eftir með Frá heimsenda undir lok 2006. Frá heimsenda var tekið mætavel þegar hún kom út og fékk platan til að mynda fimm stjörnur hjá bæði Fréttablaðinu og Morgunblaðinu. Gagnrýnendur beggja blaða líktu Forgotten Lores við íslenska rappkónga. „Hvað tónlistina varðar kraumar platan af lífi. Grúvið er allsráðandi. Það er vonlaust að sitja kyrr undir þessari tónlist. Fönk-áhrifin eru áberandi og alls konar tilþrif lífga upp á lögin; – gítar hér, píanó, flautuleikur eða skemmtileg röddun þar,“ skrifaði Trausti Júlíusson í Morgunblaðið. „Að öðrum ólöstuðum eru rímnasmiðir og rapparar Forgotten Lores þeir bestu á Íslandi. Textagerð þeirra er beitt og ákveðin. Það eru margir sem fjalla um…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗