Fjórði hver íbúi tók þátt á Tálknafirði
What the source reports
Fjórði hver íbúi á Tálknafirði tók þátt í málþingi vegna Brothættra byggða í gær og í dag. Verkefnið hefur hlotið nafnið Töfrar Tálknafjarðar . Bergdís Þrastardóttir verkefnastjóri segir þátttökuna mögulega vera met. Hún segir ýmis mál hafa borið á góma, til dæmis atvinnumál, kvótamál, skólamál og samgöngur.
„Framhaldið lítur þannig út að við tökum niðurstöðurnar af þessu þingi og þeirra umræður og svo vinnum við í verkefnastjórninni þetta áfram í verkefnisáætlun þar sem við setjum niður aðgerðir sem miða að því að vinna að þeim markmiðum sem íbúar hafa sett á þessum fundi. “ Bergdís segir íbúum Tálknafjarðar einkum umhugað um ímynd og markaðssetningu plássins. Í íbúakönnun kom í ljós að 80% íbúa fyndist gott að búa í þorpinu. Þrátt fyrir…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗