Fjöldi fólks handtekinn vegna stórs fíkniefna- og peningaþvættismáls
What the source reports
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðst í samhæfðar aðgerðir í morgun og handtók nokkurn fjölda fólks – að minnsta kosti um tíu manns – vegna rannsóknar á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu á fíkniefnum og peningaþvætti. Þetta herma heimildir fréttastofu. Lögregla hefur ekki svarað fyrirspurnum um málið í dag.
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru nokkrir þekktir brotamenn á meðal hinna handteknu, meðal annarra Atli Freyr Fjölnisson, sem situr í varðhaldi vegna aðildar að smygli á 106 kílóum af kókaíni með súrálsskipi í Straumsvíkurhöfn í sumar. Hann var handtekinn inni á Litla-Hrauni. Einhverjum hinna handteknu hefur þegar verið sleppt, en samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að fara fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum í kvöld. Um tugur manna var handtekinn vegna rannsóknar á stórfelldu fíkniefnamáli í dag. Málið snertir dreifingu og…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗