Fjögurra bíla árekstur í Ártúnsbrekku
What the source reports
Tafir urðu á umferð í Ártúnsbrekku á níunda tímanum í morgun þegar fjórir bílar lentu í árekstri.
Ekki var að sjá að nokkur hefði slasast alvarlega en einn var fluttur með sjúkrabíl til skoðunar á slysadeild. Áreksturinn olli nokkrum töfum á för þeirra sem voru á leið í vesturátt. Aðeins er hægt að keyra um eina akrein þeim megin götunnar þegar þetta er skrifað. Ártúnsbrekka. Mynd úr safni. RÚV / Ragnar Visage
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗