Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
What the source reports
Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø Bertelsen, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólann í Tromsø. Inga Dóra segir Grænlendingum létt, Rasmus er ósammála flestum sem hafa tjáð sig um samninginn og segir að í honum sé skýr takmörkun á fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Mat umsjónarmanns Heimsgluggans var að eftir digurbarkalegar yfirlýsingar og hótanir hefði fjallið tekið jóðsótt og fæðst mús. Mikill léttir á Grænlandi Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, framkvæmdastjóri hjá Air Greenland og fyrrverandi stjórnmálamaður og ritstjóri, segir að Grænlendingum sé létt eftir að samkomulagið var undirritað í New York. Það ríki hamingja með að endir hafi verið bundinn á langt og erfitt tímabil.
Fólk hafi flaggað og Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, og Múte B. Egede utanríkisráðherra hafi fengið höfðinglegar móttökur við heimkomuna til Nuuk. Samt blendnar tilfinningar Inga Dóra segir að samtalið um áhrif samningsins sé að byrja, hverjir hagnist og hvaða áhrif hann hafi á grænlenskt samfélag, einkum þar sem herstöðvar verði byggðar í Narsarsuaq og Meistaravík. Bandarísk herstöð og flugvöllur var í Narsarsuaq frá því í síðari heimsstyrjöldinni og til 1958. Óvíst er hvaða áhrif ný herstöð þar hefur á byggðina nærri flugvellinum. Fólk sem býr í grennd við flugvöllinn og fleiri hafi því blendnar tilfinningar. Flestir telja samninginn góðan fyrir Grænlendinga og Dani Flestir sérfræðingar telja að Danir og Grænlendingar geti verið ánægðir með samninginn við Bandaríkin um varnir Grænlands sem var undirritaður á þriðjudag í New York. Almennt er álitið að…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗