One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Fangar hversdagsleika ungs fólks vel en mætti vera þéttari

Fangar hversdagsleika ungs fólks vel en mætti vera þéttari

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 1, 2026, 2:00 PM
Fangar hversdagsleika ungs fólks vel en mætti vera þéttari
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 1, 2026, 2:00 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Þetta er krökkt af tilvitnunum í nútímann og tilraunum til að fanga hversdagsleika ungs fólks sem heppnast að miklu leyti vel. Sérstaklega þessi tenging við samfélagsmiðla og símann. Símar birtast mjög vel í þessari bók, mikið í þessari bók,“ segir Ingibjörg Iða Auðunardóttir um Aðskotahluti, nýjustu skáldsögu Einars Lövdahl. Sagan segir frá Sigurþóri og Þorgerði, ungum Íslendingum sem búa í Svíþjóð sem eiga það sameiginlegt að vera dálítið vegvillt. „Þetta er áhugavert að mörgu leyti.

Ég held hins vegar að bókin hefði verið aðeins betri ef hún hefði verið þéttari, aðeins tálguð og skarpari og lokahnykkurinn, það er svona tónleikakafli, það hefði þurft aðeins að endurhugsa það að mínu viti,“ segir Ingibjörg. Þá líði persónurnar aðeins fyrir það að vera of góðar. „Það vantar stundum að þær séu aðeins vondar, þær séu aðeins breyskari. “ Gagnrýnendur Kiljunnar voru sammála um að Einar væri mjög læs á nútímann. „Mér fannst vel gert, báðar þessar aðalpersónur eru með fortíðina á herðunum. Svo er móðirin, hún er eiginlega þrúguð af hversdagsleikanum með ung börn og það gerir…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS