Fá tækifæri til að læra íslensku í vinnunni
What the source reports
Svokölluð Málbrú hefur reynst vel við að auka íslenskukunnáttu starfsfólks hjúkrunarheimila sem er af erlendum uppruna. Þar lærir fólk orð sem tengjast faginu og fær æfingu á vinnutíma. 35% starfsfólks á hjúkrunarheimilum er með annað móðurmál en íslensku. Að læra tungumálið getur skipt sköpum í samskiptum við vistmenn og annað starfsfólk. „Þetta er mikilvægt fyrir mig,“ segir Magdiel Maluc Rodriguez Medina, sem vinnur á Hrafnistu. „Ég er að læra íslensku núna á Hrafnistu. Ég er að tala við íbúana, við alla. “ Samstarfsmaður hennar, Romeil Fajardo Andrade, tekur í sama streng. „Í vinnunni læri ég meira með íbúum,“ segir hann. Það sé gott að æfa sig í vinnunni og geta leitað aðstoðar hjá öðrum. „Og skemmtilegt að fá að læra meiri íslensku.
“ Vantaði íslenskunám sem nýttist í vinnu „Það hefur bara verið mikil þörf á betra íslenskunámi sem er starfstengdara og nýtist þeim betur í vinnunni og það hefur líka skort kennslu sem á sér stað á vinnutíma,“ segir Heiða Björk Vignisdóttir, lögfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV. „Við þróuðum þessa lausn í samstarfi við Mennta- og barnamálaráðuneytið og erum að sameina alla þessa þætti. “ „Ég er búinn að vera að læra íslensku hér í vinnunni í tvö ár. Ég er að læra íslensku með appi – Bara tala – og ég læri meiri orð, ný orð, inni í þessu appi,“ segir Romeil. „Inni í því er starfstengdur orðaforði, ýmsar æfingar, talæfingar, málfræði og fleira og svo getur það í vinnunni æft nýju orðin sem þau hafa lært,“ segir Heiða Björk. Fá aukið sjálfstraust til að tjá sig á íslensku…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗