One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIceland„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“

„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 12:44 PM
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt“
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 12:44 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Útköll sérsveitar ríkislögreglustjóra hafa sjöfaldast frá 2014 en sveitin er ekki fullmönnuð. Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi. Yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra segir dýrt að tryggja öryggi almennings og vill aukið fjármagn. Í góðu samtali við stjórnvöld um viðbrögð Karl Steinar Valsson, yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra, segir niðurstöðurnar ekki óvæntar sé tekið mið af þeirri þróun sem hafi orðið á eðli verkefna lögreglu.

„En við erum hins vegar í mjög góðu samtali við stjórnvöld um það hvernig við getum brugðist við þessu og það er náttúrulega búið að vera að tilkynna og vinna að fjölgun á lögreglu almennt og það mun vonandi líka ná til sérsveitarinnar. “ Karl Steinar segir mikilvægt að til þess að manna þau stöðugildi sem viðmið er um og fjölga um tíu í sérsveitinni. Hafið þið þurft að forgangsraða verkefnum og útköllum vegna mönnunar? „Nei, við höfum verið að ná að fara í þau verkefni sem við höfum sinnt. “ Flest útkalla sérsveitarinnar eru vegna tilkynninga um vopnaburð. Útköll vegna skotvopna voru þrefalt fleiri árið 2025 en 2014. Karl Steinar segir mikla breytingu hafa orðið á eðli lögreglustarfsins á síðustu 15 árum. „Og okkar hlutverk er að tryggja það að við getum brugðist við þeim verkefnum og það er verkefni sem við munum alltaf standa frammi fyrir. “…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS