Erlendir ráðamenn spyrja Þorgerði Katrínu út í Ólaf Ragnar
What the source reports
Erlendir ráðamenn hafa spurt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra út í tjáningu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta, á samfélagsmiðlum. Þeir hafa spurt út í tíst hans og endurtíst á málflutningi rússneskra ráðamanna. Rússar reyni að beina athyglinni frá árásum þeirra Þessu greindi Þorgerður Katrín frá í viðtali við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann eftir ríkisstjórnarfund í dag. Hún var spurð um yfirlýsingu rússneska sendiráðsins sem lýsti undrun og harmi yfir því að hún teldi deilingar forsetans fyrrverandi á málflutningi rússneska utanríkisráðherrans alvarlegri en athugasemd framkvæmdastjóra Flokks fólksins við færslu Frakklandsforseta á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðherra segir miður að fyrrverandi forseti hafi ýtt undir skýringar og sjónarmið Rússa eftir innrás þeirra í Úkraínu. Hún hafi þurft að skýra baksögu forsetans fyrrverandi fyrir erlendum ráðamönnum.
Þorgerður Katrín segir yfirlýsingu rússneska sendiráðsins í dag dæmigerða útúrsnúninga ríkis sem reyni að beina athyglinni að öllu öðru en árásum þeirra í Úkraínu. Þögn stjórnarandstöðunnar um tíst fyrrverandi forseta „Það sem mér finnst hins vegar áhugavert er: Á meðan að þetta er þá er ekki verið að gera neinar athugasemdir við viðbrögð og tíst, meðal annars fyrrum forseta Íslands, sem raunverulega hefur rödd þarna úti í heimi. Það er fylgst með því sem hann meðal annars segir. Það hafa verið gerðar athugasemdir, eða ég hef verið spurð að því á erlendum vettvangi, um þetta sjónarmið hans; hvernig hann ýtir undir narratívu og sjónarmið Rússa. “ Hún segir það alvarlegt að verið sé að endurtísta málflutningi utanríkisráðherra Rússa sem segir aðgerðir Atlantshafsbandalagsins til að auka öryggi og eftirlit á Atlantshafi geta valdið óróa og ýtt undir frekari hervæðingu Rússa. „Mér finnst…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗