Erfiður þingvetur framundan – Inga Sæland drottning ríkisstjórnarinnar
What the source reports
„Ég held að þetta verði mjög erfiður vetur fyrir ríkisstjórnarflokkana og þær augljóslega ætla ekki að gefa neitt eftir. Það var alla vega ekki verið að rétta fram neina sáttarhönd af einhverju viti og við sjáum hvernig gneistar á milli Miðflokksins og Viðreisnar,“ segir Ásthildur Sturludóttir, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur. Forsætisráðherra flutti í kvöld stefnuræðu sína og þingmenn brugðust við með ræðum. Magnús Geir Eyjólfsson ræddi við Ásthildi og Eyrúnu Magnúsdóttur, ritstjóra Gímaldsins, að loknum þingfundi. Viðtalið við þær má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Þingveturinn verður hvorki auðveldur né átakalaus, segir stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur. Forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína í kvöld. Inga Sæland virðist vera sigurvegari ríkisstjórnarsamstarfsins.
Ásthildur segir efnahagsástandið ekki hjálpa ríkisstjórninni og ýmsum málum verði erfitt að koma í gegn, til dæmis fjárlögunum. „Þeir eru alltaf tilbúnir í stríð,“ segir Ásthildur um Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason, þingmenn Miðflokksins. Þeir séu tilbúnir að fylgja sinni afstöðu mjög fast eftir og hafi sýnt að þeir séu tilbúnir að standa í ræðustól eins lengi og þörf sé á. Engin spurning sé um óvild milli Viðreisnar og Miðflokksins og Þorgerður Katrín Gunnlaugsdóttir, formaður Viðreisnar, hafi sannarlega ekki rétt sáttarhönd til þingsins. „Hún sendi pillur víða. “ Eyrún tekur undir: „Það var harðari tónn í henni en í Kristrúnu. “ Meiri ástríða hafi einkennt ræður stjórnarflokkanna í kvöld, ræður stjórnarandstöðunnar hafi verið tæknilegri. „Hæ queen“ Eyrún segir áhugavert að ræða forsætisráðherra hafi að miklu leyti verið upptalning á afrekum Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra. „Maður upplifði það svolítið í þessu að hún kæmi sem einhvers konar drottning…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗