Erfiðar stjórnarmyndunarviðræður fram undan hjá Kristersson
What the source reports
Ulf Kristersson, sitjandi forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi Moderaterna, fékk í gær umboð til að mynda nýja ríkisstjórn. Þetta gerðist eftir að Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, var ekki samþykkt í þinginu sem forsætisráðherra - nokkuð sem var viðbúið. Hennar tilraun var sú þriðja til að mynda ríkisstjórn frá kosningum sem fóru fram 13. september. Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna hefur í tvígang reynt að mynda stjórn Rauðu blokkarinnar, sem hennar flokkur leiðir. Það hefur ekki tekist, einkum þar sem Vinstri flokkurinn krefst þess að sitja í ríkisstjórn en Miðflokkurinn er á móti því. Þingið felldi svo tillögu um að Andersson yrði forsætisráðherra.
Elisabeth Thand Ringqvis fékk þá umboðið og leitaði þá til flokka bæði í rauðu og bláu blokkinni. Það gekk heldur ekki upp og þingið felldi hana sem forsætisráðherraefni í gær. Kristersson sagði á blaðamannafundi í gær að hann ætti ekki auðvelt verkefni fyrir höndum. „Ég sé fyrir mér að þetta verði erfitt, sennilega mjög erfitt. En sannarlega ekki ómögulegt,“ sagði hann. Það sem gerir stjórnarmyndunina aðallega erfiða er að Kristersson þarf stuðning utan bláu blokkarinnar til að verja ríkisstjórnina vantrausti. Eini möguleikinn til þess er hjá Miðflokknum. Sá flokkur vill ekki vera í ríkisstjórn með Svíþjóðardemókrötum, sem aftur gera kröfu um að sitja í ríkisstjórn. Og á meðan hvorugur flokkurinn gefur eftir næst ekki að mynda ríkisstjórn þessara flokka. Eins og áður segir…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗