One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandEr miðvarðakrísa á Íslandi?

Er miðvarðakrísa á Íslandi?

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 22, 2026, 5:19 PM
Er miðvarðakrísa á Íslandi?
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 22, 2026, 5:19 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

„Verkefnið fyrir íslenskan fótbolta er að búa til miðverði og djúpa miðjumenn,“ segir Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta. „Það gerist ekki á þessum árum sem Arnar Gunnlaugsson verður við völd, þetta verður að búa til í samfélaginu. “ Jörundur Áki Sveinsson, afreksstjóri KSÍ, segir að þar innanborðs séu allir meðvitaðir um stöðuna en að fótboltinn sé þó að breytast: „Varnarmenn eins og þeir voru í gamla daga, stórir og sterkir, þeir eru vissulega til en kannski nútímafótboltinn krefst annarra þátta. Það þarf að vera jafnvægi á milli og við þurfum að vera með sterka varnarmenn og svo ekki síður þá sem eru góðir að bera boltann upp völlinn. “ Skortur á varnarmönnum hjá A-landsliði karla í fótbolta hefur verið nokkuð til umræðu síðustu misseri og margir hafa skoðanir á því.

KSÍ er í átaki en ábyrgðin liggur einnig hjá félögunum í landinu að mati afreksstjóra sambandsins. Norðmenn tóku málin í sínar hendur Í Noregi hefur umræðan um skort á varnarmönnum líka verið hávær í mörg ár. Jóhannes Harðarson er aðstoðarþjálfari Start og hann tók þátt í átaki sem norska knattspyrnusambandið setti í gang 2024 þar sem kenndur var varnarleikur. „Menn svona vöknuðu upp við það að það voru ekki að koma fram nógu mikið af varnarmönnum sem voru að taka skrefið út í stóra klúbba í Evrópu og það sást líka á landsliðinu, þeir áttu í vandræðum með að komast á stórmót. Eitthvað þurfti að gera þannig að þeir fóru í herferð sem hefur verið í gangi síðastliðin ár. “ Upplifunin hjá Norska sambandinu var sú að varnarleikur væri ekki settur í forgang hjá félögunum. „Þau mynduðu hóp landsliðsþjálfara yngri landsliða sem ferðuðust á milli landshluta í Noregi og vildu kenna varnarleik hreinlega; hvernig á að verjast og að búa til ákveðna virðingu og stolt gagnvart því að…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS