Engar refsiheimildir við sölu ólöglegra peptíða
What the source reports
Innkirtlasérfræðingur segir að lögleg peptíð geti markað þáttaskil í lækningu og meðferð margra alvarlegra sjúkdóma. Ólöglegur innflutningur efnanna sé hins vegar mikið áhyggjuefni og notkun þeirra stórhættuleg. Fólk sem flytur efnin til landsins og selur þau á svörtum markaði hefur hagnast mikið síðustu misserin. Yfir eitt hundrað lögleg peptíð eru í notkun hér á landi og sum hafa verið uppáskrifuð í áratugi. Þau eru til að hafa stjórn á sykursýki, örva fæðingarhríðar, við fylgikvillum HIV, sem vaxtarhormón o. fl. Á síðustu árum hafa peptíð verið notuð við þyngdarstjórnun og má þar nefna lyf eins og Wegovy og Ozempic. „Við vitum ekkert hvað er í þessu“ Á sama tíma hefur notkun ólöglegra peptíða stóraukist. Þau koma flest frá Kína og eru seld á svörtum markaði, á netinu, af einkaþjálfurum eða milli vina og kunningja svo dæmi séu tekin.
„Við vitum ekkert hvað er í þessu,“ segir Arna Guðmundsdóttir, innkritlasérfræðingur. „Í besta falli getur verið ekkert í þessu og þá eru náttúrulega engin áhrif. Þá er hreinlega verið að selja þér lyfleysu. En svo getur líka verið mjög mikið af einhverjum efnum og þú getur fengið ofskömmtun sem að við vitum ekkert hvaða afleiðingar getur haft. “ Unnið er að reglugerð í heilbrigðisráðuneytinu sem veitir refsiheimildir og bann við innflutningi og sölu ólöglegra peptíða. Svartur markaður með efnin blómstrar hér á landi og sérfræðingar segja það mikið áhyggjuefni. Ólöglegu efnin geta valdið krabbameinum, nýrna- og/eða lifrarbilun, hjartasjúkdómum og valdið ofnæmi og sýkingum. „Ég er að sjá talsvert mikið af fólki sem er að nota þetta og maður sér mjög mikið þyngdartap. Það eru mikil loforð um alls konar bata, bæði þyngdarstjórnun, endurheimt eftir áverka, bætta frammistöðu í íþróttum og það verður örugglega mikil umræða um þetta í komandi…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗