Ekki von á fleiri uppsögnum hjá Hafnarfjarðarbæ
What the source reports
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í uppsagnir svo hægt væri að bregðast við slæmri fjárhagsstöðu bæjarins. „Í árshlutauppgjöri kemur í ljós að frávikin í rekstrarniðurstöðu bæjarins eru upp á 2,8 milljarða tæpa, rekstrarniðurstaðan var þannig að það var mínus upp á 2,4 milljarða tæpa,“ segir Þórður.
„En það hafði verið gert ráð fyrir rúmum fjögur hundruð milljónum í hagnað eða afgangi af rekstri bæjarins. “ Leggja á niður 23 störf, samtals 21,6 stöðugildi. Þremur starfsmönnum verða boðin ný störf. Takmarka á ráðningar hjá Hafnarfjarðarbæ og allar ráðningar í störf utan grunnþjónustu verða lagðar fyrir ráðningarnefnd. Þórður segir að ekki verði ráðist í frekari uppsagnir. Uppsagnirnar náðu til starfa í ráðhúsinu en ekki framlínustarfsmanna. Þórður segir, aðspurður hvort markmið sveitarfélaga um að takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5% á…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗