One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandEkkert gengur hjá Coventry — aðeins gerst sex sinnum áður í sögunni

Ekkert gengur hjá Coventry — aðeins gerst sex sinnum áður í sögunni

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 3:18 PM
Ekkert gengur hjá Coventry — aðeins gerst sex sinnum áður í sögunni
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 3:18 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Nýliðarnir í Coventry hafa tapað öllum fjórum leikjum sínum í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í ár. Þá hefur liðið enn ekki skorað í fyrstu fjórum deildarleikjunum. Nú hafa aðein sjö lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hafa ekki náð að skora í fyrstu fjórum umferðunum. Liðið tapaði í dag 0-5 gegn Brighton. Staðan var 0-1 í hálfleik og var fyrri hálfleikur nokkuð jafn. Taiwo Awonyi fékk beint rautt spjald í stöðunni 0-2 og þá tóku gestirnir frá Brighton öll völd. Mörkin í dag: Kostoular 35', Yalcouye 53', Gross 70', Dunk 83', Ayari, 90+4' Frank Lampard stýrði liðinu upp í efstu deild og þarf nú að snúa gengi liðsins við. Coventry féll úr ensku úrvalsdeildinni árið 2001. Tottenham varð í gær sjötta liðið í sögunni til að skora ekki í fyrstu fjórum umferðunum. Coventry er nú það sjöunda. Góðar fréttir?

Góðu fréttirnar fyrir Coventry menn eru að öll þessi fimm lið náðu að lokum að fóta sig og ekkert þeirra féll. Versta niðurstaðan var 11. sæti. Þá eru það ágætis fréttir fyrir Lampard að tveir af þeim fimm sem lentu í þessu héldu starfi sínu. Tottenham er þarna ekki talið með. Lokastaða liðanna: Sheffield Wednesday - 7. sæti - Trevor Francis var ekki rekinn. Newcastle United - 7. sæti - Graeme Souness var rekinn og Glenn Roeder tók við. Swansea - 11. sæti - Brendan Rodgers var ekki rekinn Crystal Palace - 11. sæti - Frank de Boer var rekinn (eftir 4 leiki). Roy Hodgson tók við. Aston Villa - 4. sæti - Unai Emery var ekki rekinn. Tottenham - ? sæti - Verður de Zerbi rekinn? Coventry - ? sæti - Verður Lampard rekinn? Ein versta byrjun sögunnar Annar jákvæður vinkill fyrir Coventry-aðdáendur til að horfa til er að þetta er ekki versta byrjun á tímabili í sögunni.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS