„Eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri“
What the source reports
„Ég vil nú bara efast um að margt af þessu fólki sé í raun og veru með hag barnanna í huga,“ segir Ragnar Bjarnason, innkirtlalæknir barna, þegar hann er spurður um trans fóbíska orðræðu, ranghugmyndir og þekkingarskort á starfsemi trans teymisins í þættinum Meiningu á Rás 1. Ragnar segir að eftir að hafa kynnst þeirri vanlíðan sem mörg trans barna eru að fara í gegnum vegna ástands síns þá sé fólk sannarlega ekki að verja hagsmuni barnanna. „Ég á bágt með að sjá hvernig það er að vernda hagsmuni þeirra með því að neita þeim um þjónustu sem lætur þeim líða betur. “ Í hlaðvarpinu Meining er fjallað um bakslagið í málefnum hinsegin fólks hér á landi. Í nýjasta þætti er staða yngri kynslóðarinnar meðal annars skoðuð með læknum í trans teymi barna og ungmenna.
Hér má hlusta á þáttinn: Læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum eru sammála um að umræðan um trans börn sé á villigötum og einkennist af fáfræði. Trans sé ekki geðsjúkdómur og að um engan farald sé að ræða. Trans börn hafi alltaf verið til Björn Hjálmarsson, barnageðlæknir í trans teymi barna, segir sárustu ranghugmyndina vera þá að trans börn eigi ekki tilverurétt. „Að þetta séu einhver mistök og ruglingur og það eigi að taka tilveruréttinn af þeim. Það er nóg að skoða bara mannkynssöguna. Trans börn og trans fólk hefur alltaf verið til. Þau eru bara núna að öðlast hugrekki og visku til þess að koma fram með sinn trans veruleika. “ Björn telur fordómana fyrst og fremst stafa af fákunnáttu og þekkingarleysi á líffræði mannsins. „Og virðingarleysi gagnvart því að þessi svokallaða kynjatvíhyggja, að það séu bara til karlar og bara til konur, að hún bara stenst ekki. “ Hann verður oft skelkaður yfir trans fóbískri orðræðu. „Á skáldlega vísu þá finnst mér eins og trans börnin séu eins og lítil falleg blóm…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗