One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandÞegar Trump hringdi í Bjarna

Þegar Trump hringdi í Bjarna

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 10, 2026, 6:00 PM
Þegar Trump hringdi í Bjarna
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 10, 2026, 6:00 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Þegar Donald Trump birti í vikunni mynd af landakorti, þar sem Kanada, Grænland, hlutar Mið-Ameríku og svo Ísland voru sveipuð bandaríska fánanum, kallaði utanríkisráðherra sendiherra á Bandaríkjanna á sinn fund og gerði honum ljóst að færslan á samfélagsmiðlinum Truth Social væri með öllu óviðeigandi. Trump segir og skrifar eitthvað alla daga, skiptir um skoðun, kastar einhverju fram í gríni. Oft hafa það verið landakort þakin bandarískum fána eða nýjum nöfnum sem hann vill kalla landsvæði. En utanríkisráðuneytið tók kortinu með Íslandi ekki sem meinlausu gríni – enda er grín Trumps stundum orðið að stefnu skömmu síðar. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem Trump viðrar hugmyndir um að Ísland verði eitt ríkja Bandaríkjanna. 26. nóvember 2024 var Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. Þetta var fjórum dögum fyrir alþingiskosningar. Hann var heima hjá sér þegar síminn hringdi.

„Nánast um leið og ég gekk inn um dyrnar heima seinni partinn tók við símtal við Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseta,“ skrifaði Bjarni á Facebook-síðu sína, síðar sama dag, og hélt áfram: „Hann hitti ég síðast á leiðtogafundi NATO árið 2017. Við áttum gott spjall í gær, ég lagði áherslu á vináttu ríkjanna og viðskipti, en Bandaríkin eru okkar stærsta einstaka viðskiptaland fyrir íslenskar útflutningsvörur. [… ] Trump var sérstaklega áhugasamur um Ísland, bæði sem ferðamannastað og um sögu og menningu okkar. Hann bað fyrir góðar kveðjur til íslensku þjóðarinnar. “ Óvenjulegt símtal Símtalið var nokkuð óvenjulegt. Venjulega hringir nýkjörinn forseti eftir að hann er settur í embætti – sem í tilfelli Trumps var ekki fyrr en í janúar 2025. En Trump er óhefðbundinn, hringdi í Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur strax sjöunda nóvember – tveimur dögum eftir kjördag vestra. Nokkrum dögum síðar…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS