„Ég hafði enga trú á því að ég gæti eignast eðlilegt líf”
What the source reports
„Ég hafði enga trú á því að ég gæti orðið edrú. Ég hafði enga trú á því að ég gæti eignast eðlilegt líf. Ég hef fengið að sjá það yfir tímann að ég get það og er búinn að eignast yndislegt líf. Fá að ferðast um heiminn og gera ótrúlegustu hluti sem mig óraði ekki fyrir,” segir Ingólfur Snær Víðisson. Við kynnumst Ingólfi Snæ í þriðja þætti Svona er lífið á RÚV í kvöld. Ingólfur hefur helgað starfsferil sinn jaðarsettum hópum. Hann starfar fyrir Afstöðu félag fanga og hefur unnið með heimilislausum og fyrir Barna- og fjölskyldustofu. Hann á að baki mikla reynslu sem hann nýtir í störfum sínum. En leiðin þangað var ekki greið. Þegar Ingólfur var 14 ára var hann orðinn munaðarlaus, móðir hans lést þegar hann var um fjögurra ára og faðir hans þegar hann var 14 ára. „Mín minning af mömmu minni sem barni er bara af því að hugsa um hana sem engil,” segir hann.
„Pabbi deyr síðan þegar ég er 14 að verða 15. Man mjög vel eftir því. Það var alveg mjög mikið áfall. ” Ingólfur á góðar minningar úr æsku. „Ég og systir mín fengum allt sem við vildum og vorum algjörar frekjudollur. Ég er mjög þakklátur fyrir mína barnæsku. Ég fékk mjög mikið sem aðrir fengu ekki. Þetta voru mjög góðir tímar framan af. Fallegar minningar. “ Mikið hafði gengið á í lífi Víðis, föður Ingólfs. Valgeir Víðisson, hálfbróðir Ingólfs, hvarf sporlaust árið sem Ingólfur kom í heiminn. Faðir hans barðist fyrir réttlæti í málinu sem er enn óupplýst. Ingólfur Snær Víðisson var munaðarlaus aðeins 14 ára. Unglingsárunum eyddi hann á fósturheimilum og í úrræðum barnaverndar þar til hann var dæmdur í fangelsi 17 ára. Hann sneri lífi sínu við og hefur helgað starfsferil sinn því að hjálpa ungmennum. „Hann var búinn að ganga í gegnum mikið í sínu lífi. Hálfbróðir minn hverfur sporlaust, tengt við fíkniefni, undirheima, það…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗