One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandDjúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi

Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 7:08 AM
Djúp lægð nálgast landið og viðvaranir í gildi
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 7:08 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands. Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunnanlands má búast við stormi eða jafnvel roki fram að hádegi. Viðvaranir hafa verið gefnar út og fólk er hvatt til að huga að lausamunum. Ferðaveður er varasamt en lægðinni fylgir afar stórt og ákaft úrkomusvæði og því rignir á öllu landinu í dag. Á Suðausturlandi og Austfjörðum er útlit fyrir mikla rigningu.

Möguleiki er á staðbundnum flóðum, grjóthruni eða skriðuföllum, sem geta valdið tjóni eða raskað samgöngum. Seinnipartinn í dag fer lægðarmiðjan að færast yfir landið og dregur þá úr vindi nokkuð víða. Í kvöld verður stærstur hluti landsins í litlum eða skaplegum vindi inni í lægðarmiðjunni, en á Vestfjörðum helst vindurinn áfram sem hvassviðri eða stormur. Á morgun gera spár ráð fyrir að lægðin taki sér stöðu rétt úti fyrir Norðausturlandi. Hún sendir þá hvassan…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS