One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandCity sýndu hvað í þeim býr manni færri á Old Trafford

City sýndu hvað í þeim býr manni færri á Old Trafford

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 5:40 PM
City sýndu hvað í þeim býr manni færri á Old Trafford
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 5:40 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Manchester City vann 0-1 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Manchester City var manni færri nær allan leikinn en Phil Foden fékk beint rautt spjald fyrir að sparka í Bruno Fernandes á 23. mínútu. Rashford átti skot í stöng úr aukaspyrnu af löngu færi á 44. mínútu, en markalaust var í hálfleik. Erling Haaland skoraði eina mark leiksins er hann kláraði fyrirgjöf Josko Gvardiol vel upp í þaknetið. Markið kom á 60. mínútu en var að vísu dæmt af vegna rangstöðu fyrst.

Eftir að VAR-teymið skoðaði markið var það metið sem svo að Haaland væri réttstæður. Af hverju fékk markið að standa? Boltinn fór af fæti Patrick Dorgu en auk þess var það metið sem svo að Enzo Fernandez hefði ekki reynt að ná að snerta boltann. Því var Haaland réttstæður. Ef að Fernandez hefði reynt að snerta boltann hefði markið verið dæmt af, en Lisandro Martinez varðist þar gegn landa sínum. Gianluigi Dommarumma sýndi tilþrif leiksins er hann varði skot Bryan Mbeumo frábærlega. Mbeumo fékk afbragðs færi er hann var einn á auðum sjó í teignum, þegar einungis nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum. Manchester City vann 0-1 sigur gegn…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS