BRICS hvetur til stillingar í Miðausturlöndum
What the source reports
Leiðtogar BRICS-ríkjanna, þar á meðal Kína, Indlands og Rússlands, kölluðu eftir stillingu í Miðausturlöndum á fundi sínum sem lauk í morgun. Íranar og Sameinuðu arabísku furstadæmin studdu líka ályktunina sem beinist að Bandaríkjunum. Hvað er BRICS? BRICS er bandalag sem var stofnað árið 2009 til að auka áhrif ríkja þess í alþjóðastofnunum á kostnað vestrænna þjóða. Upphaflega voru Brasilía, Rússland, Indland, Kína og Suður-Afríka í bandalaginu en síðan hafa Egyptaland, Eþíópía, Indónesía, Íran og Sameinuðu arabísku furstadæmin bæst við. Rússar og Kínverjar hafa einkum viljað nýta þetta bandalag til að minnka áhrif Vesturlanda í heiminum, meðan Indland hefur frekar viljað brúa bil þar á milli.
Leiðtogar ríkjanna héldu fund á Indlandi um helgina þar sem meðal annars var rætt um aukið samstarf BRICS-ríkjanna. Narendra Modi forsætisráðherra Indlands sagði meðal annars á fundinum að ríkin hefðu reynt að stuðla að auknum hagvexti heimsins. Modi og Vladimír Pútín forseti Rússlands ræddu þar saman um að styrkja tengslin milli landanna. Ályktun beint að Bandaríkjunum Á þessum fundi tókst það sem ekki tókst á fundi utanríkisráðherra ríkjanna í maí - að ná saman um ályktun um stríðið í Miðausturlöndum. Fyrri dagurinn fór í miklar umræður og úr því kom ályktun þar sem miklum áhyggjum var lýst af áframhaldandi stigmöngnun í Miðausturlöndum og Vestur-Asíu. Farið var fram á að stríðandi fylkingar héldu að sér höndum eins og kostur væri og forðuðust aðgerðir sem gætu kynnt undir…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗